Uppsprettan
Umsóknir í Uppsprettuna
Opnað verður fyrir umsóknir í næstu úthlutun Uppsprettunnar á milli jóla og nýárs 2024.
Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið uppsprettan@hagar.is.
Frá hugmynd í framleiðslu
Uppsprettan er nýsköpunarsjóður á vegum Haga. Hlutverk sjóðsins er að virkja og styðja frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í íslenskri matvælaframleiðslu.
Sjóðurinn leggur áherslu á stuðning við frumkvöðla verkefni sem taka tillit til sjálfbærni og styðja við innlenda framleiðslu.
Hvaðan kemur nafnið Uppsprettan?
Uppspretta vatns, uppspretta góðra hugmynda o.s.frv. Því má segja að orðið feli í sér allt þrennt; góð hugmynd kviknar, hún er vökvuð til vaxtar og upp sprettur sproti!
Umsóknir 2023
Árið 2023 bárust metfjöldi umsókna og voru valin 12 verkefni sem hlutu styrki, sjá nánar um styrkhafa hér: https://www.hagar.is/uppsprettan/styrkhafar-2023/ .
Ávarp forstjóra
Í myndbandinu hér að neðan segir Finnur Oddsson forstjóri Haga frá tilkomu sjóðsins og árangri verkefna sem fengu styrk 2021. Einnig er rætt við nokkra frumkvöðla sem deila reynslu sinni af þróun á vörum frá hugmynd á markað.
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar um Uppsprettuna má nálgast með því að senda tölvupóst á uppsprettan@hagar.is