Fara á efnissvæði

Uppsprettan

Umsóknir í Uppsprettuna

Úthlutun styrkja úr Uppsprettunni 2026 er lokið.

Stefnt er á að opna fyrir umsóknir vegna næstu úthlutunar í lok árs 2026. Nánari tímasetning verður tilkynnt sérstaklega. 

 

Frá hugmynd í framleiðslu

Uppsprettan er nýsköpunarsjóður á vegum Haga. Hlutverk sjóðsins er að virkja og styðja frumkvöðla til nýsköpunar og þróunar í íslenskri matvælaframleiðslu.

Sjóðurinn leggur áherslu á stuðning við frumkvöðla verkefni sem taka tillit til sjálfbærni og styðja við innlenda framleiðslu. 

 

Hvaðan kemur nafnið Uppsprettan?

Uppspretta vatns, uppspretta góðra hugmynda o.s.frv. Því má segja að orðið feli í sér allt þrennt; góð hugmynd kviknar, hún er vökvuð til vaxtar og upp sprettur sproti!

 

Uppsprettan 2026

Alls bárust 40 umsóknir um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd níu verkefni til styrkveitingar. Lesa má nánar um verkefnin hér

Hér að neðanverðu má sjá myndbönd um fyrri styrkhafa og myndir frá afhendingu styrkja.

 

 

 

Styrkhafar í Uppsprettunni ásamt starfsfólki Haga og dótturfélaga

Nánari upplýsingar

Frekari upplýsingar um Uppsprettuna má nálgast með því að senda tölvupóst á uppsprettan@hagar.is