Styrkhafar 2025

Styrkhafar 2025
Alls bárust tugir umsókna um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd níu verkefni til styrkveitingar. Afhending á styrkjum fór fram á sérstökum viðburði í höfuðstöðvum Banana, dótturfélags Haga.
Tropic
Framleiðsla og markaðssetning á gómsætum eftirréttum úr plöntufæði. Kristín Amy, sem fer fyrir verkefninu, er nú þegar með ýmsar heilsuvörur til sölu í verslunum Hagkaups undir vörumerkinu Tropic.
Sea Growth
Undirbúningur á framleiðslu hágæða sjávarfangs beint úr fiskfrumum með sjálfbærum aðferðum. Aðferðin byggir á því að einangra stofnfrumur úr hrogni og rækta þær upp í vöðva- og fitufrumur. Að verkefninu standa Birgitta Ásgrímsdóttir og Alexander Schepsky.
PUFF
Framleiðsla og markaðssetning á loftpoppuðu poppkorni með fjölbreyttum og frumlegum bragðtegundum. Stofnendur PUFF eru þeir Arnar Valgeirsson, Árni Hreiðarsson og Eiður Kristjánsson.
Ísponica
Lóðrétt grænmetisræktun (e. vertical farm) á Hofsósi þar sem ræktaðar verða sprettur, radísur, baunaspírur og sveppir. Frumkvöðullinn á bak við verkefnið er Amber Monroe.
Feed the Viking
Framleiðsla og markaðssetning á girnilegum íslenskum grýtum úr frostþurrkuðu hráefni. Feed the Viking, sem stofnað var af Friðriki Guðjónssyni, er þegar í dag að bjóða upp á fjölbreytt úrval af frostþurrkuðum vörum í verslunum Hagkaups.
Villt að vestan
Frekari vöruþróun á úrvals sósu- og súpublöndum úr íslenskum villisveppum. Verkefnið er í höndum Sæbjargar Freyju Gísladóttur og Eyvindar Atla Gíslasonar frá Flateyri. Þau hafa áður hlotið styrk úr Uppsprettunni og fóru inn með vörur sínar í Hagkaup skömmu fyrir síðustu jól.
Brúnastaðir
Fjölskyldan á Brúnastöðum í Skagafirði fær styrk til framleiðslu og þroskunar á hágæða geitaosti. Hluti af þroskunarferlinu felst í að láta ostinn liggja í bjórbaði.
HD Grill
Framleiðsla og markaðssetning á tólgi og soði úr vannýttum dýraafurðum. Félagarnir Halldór Sverrisson og Davíð Clausen standa að verkefninu.
Re Argentina
Framleiðsla og markaðssetning á ljúffengum eftirréttum að argentínskum sið. Stofnandi verkefnisins er Carla Ines Valvo.