Sjálfbærni
Hagar hafa lagt metnað sinn frá upphafi í að þjóna íslenskum neytendum með ábyrgum hætti. Sjálfbærnistefna Haga er langtímaáætlun félagsins um hvernig það getur lagt sitt af mörkum til betra og heilbrigðara samfélags og umhverfis, samhliða heilbrigðum rekstri. Stefnan segir auk þess til um hvernig samskiptum við hagsmunaaðila verði háttað. Helstu hagsmunaaðilar Haga eru starfsfólk, hluthafar, viðskiptavinir, birgjar og fjármögnunaraðilar, fjölmiðlar auk samfélagsins í heild sinni.
Sjálfbærnistefna Haga byggir á fjórum meginstoðum;
Umhverfi, Mannauður, Neytendur og Stjórnarhættir.
Hagar og rekstrareiningar þess hafa frá árinu 2019, í samvinnu við Klappir Grænar lausnir hf., birt sjálfbærniuppgjör samstæðunnar skv. UFS leiðbeiningum Nasdaq. Hagar eru aðilar að Festu, miðstöð um sjálfbærni og bakhjarlar Grænvangs, samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir.
Sérstakan kafla um sjálfbærni má finna í ársskýrslu félagsins.
Árs- og sjálfbærniskýrsla Haga 2023/24
Meginstoðir stefnu
Stefna Haga um sjálfbærni byggir á fjórum meginstoðum. Stoðirnar móta þær áherslur sem félagið fer eftir og mótar þau lykilverkefni sem unnið er að hverju sinni. Meginstoðirnar fjórar eru ekki innbyrðis háðar og ein stoð er ekki annarri mikilvægari.
Umhverfi
Hagar leggja áherslu á að þekkja þau beinu og óbeinu áhrif sem starfsemi félagsins hefur á umhverfið og leitast við að draga úr neikvæðum áhrifum eftir fremsta megni. Með neikvæðum áhrifum er einkum átt við losun gróðurhúsalofttegunda, hvers konar mengun, matarsóun og athafnir sem stuðla að hnignun líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa.
Mannauður
Hagar kappkosta við að tryggja vellíðan og öryggi starfsfólks. Jafnrétti er haft að leiðarljósi í öllum ákvörðunum og skapar félagið virði fyrir atvinnulífið með menntun og þjálfun starfsfólks. Jafnframt leggja Hagar áherslu á að réttindi starfsfólks í virðiskeðju félagsins séu virt.
Neytendur
Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga. Lögð er áhersla á ríkulegt framboð af heilsusamlegum valkostum auk þess að bjóða neytendum hagstæðustu kjör hverju sinni óháð staðsetningu. Þá styður félagið ýmis samfélagsleg málefni hvort sem er í formi styrkja eða samstarfsverkefna.
Stjórnarhættir
Hagar starfa eftir þeim lögum og reglum sem félaginu ber að fylgja, sem og leiðbeiningum um góða stjórnarhætti. Auk þess hefur félagið sett sér siða- og samskiptareglur sem fylgt er í hvívetna í starfseminni.
Heimsmarkmið er styðja stefnu
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru 17 talsins og hafa Hagar valið 7 af markmiðunum sem leiðarljós í framkvæmdaráætlun. Markmiðin eru; 5: Jafnrétti kynjanna, 8: Góð atvinna og hagvöxtur, 9: Nýsköpun og uppbygging, 10: Aukinn jöfnuður, 12: Ábyrg neysla og framleiðsla, 13: Aðgerðir í loftlagsmálum, 15: Líf á landi
Heimsmarkmiðin styðja stefnustoðir félagsins og er ætlað að virkja stjórnendur til innleiðingar á stefnu og framkvæmda á verkefnum.
Sjálfbærniuppgjör
Hagar og öll rekstrarfélögin hafa í samvinnu við Klappir Grænar Lausnir hf. innleitt umhverfisstjórnunarkerfi Klappa og unnið að greiningu á mælanlegum árangri félagsins í umhverfismálum og öðrum málum tengdum sjálfbærni. Hagar hafa í samvinnu við Klappir tekið saman sjálfbærniuppgjör samstæðunnar fyrir rekstrarárið 2023. Um er að ræða fyrsta sjálfbærniuppgjör félagsins sem hlotið hefur staðfestingu óháðs endurskoðanda.
Rekstrareiningar og sjálfbærni
Fyrirtækin Bónus, Hagkaup, Olís, Aðföng og Bananar hafa öll gefið út sjálfbærniskýrslu fyrir rekstrarárið 2023. Í skýrslunum má sjá samantekt á helstu sjálfbærni- og samfélagsverkefnum á árinu, sem og markmið fyrirtækjanna í sjálfbærni til næstu ára. Zara hefur einnig gefið út sjálfbærniuppgjör fyrir árið 2023 í samvinnu við Klappir.
Skýrslurnar fyrir rekstrarárið 2023/2024 má finna í árs- og sjálfbærniskýrslu Haga og hér neðar á síðunni.