Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið að því að skerpa á skipulagi þjónustu og sölu á hreinlætis-, rekstrar- og heilbrigðisvörum innan samstæðu Haga, sérstaklega á vegum Olís. Afrakstur þeirrar vinnu er að nú á vormánuðum verður stofnuð ný rekstrareining innan Haga, sem mun bera nafnið Stórkaup. Meginhlutverk Stórkaups verður, eins og nafnið bendir til, þjónusta við stórnotendur, t.d. framleiðendur, rekstraraðila og veitingageirann, þar sem áhersla verður lögð á hátt þjónustustig og nútímavætt sölukerfi, sem byggir á vefsölu og öflugu þjónustuveri.
Nýtt félag, Stórkaup, mun nýta sterka innviði Haga þegar kemur að innkaupum- og vöruhúsarekstri og er gert ráð fyrir að vöruúrval til lengri tíma verði sem breiðast, viðskiptavinum til hagsbóta. Stórkaup tekur þannig að nokkru leyti við hlutverki Rekstrarlands, sem í dag er hluti af Olís. Samhliða opnun Stórkaups er unnið að aðlögun á útibúneti Olís á landsbyggðinni, einkum þjónustuskipulagi, en á næstu mánuðum verður verslunum breytt í afgreiðslulagera og söluskrifstofur. Þetta mun gera Olís kleift að skerpa á fókus, varðveita þá sérstöðu sína sem fólgin er í nærþjónustu um allt land og veita enn betri þjónustu í þeim vöruflokkum sem eftir standa. Undirbúningur við að koma Stórkaup á legg er þegar hafinn, en þar til yfirfærslu verkefna er lokið, þann 1. maí n.k., munu viðskiptavinir sem fyrr njóta framúrskarandi þjónustu starfsfólks Olís og verðandi starfsfólks Stórkaups. Nánari upplýsingar um breytingar á útibúum Olís verður hægt að nálgast á heimasíðu Olís.
“Með tilfærslu verkefna Olís innan samstæðu Haga hefur skapast grundvöllur fyrir rekstrareiningu sem sinnir stórnotendum umfram það sem við höfum hingað til gert og nýtum til þess styrkleika félagsins, einkum á sviði innkaupa og í starfsemi vöruhúsa. Samhliða horfum við til breyttra neysluvenja á matvöru á síðustu árum, þar sem hlutdeild veitingastaða, mötuneyta og framleiðenda á tilbúinni matvöru hefur heldur aukist í ýmsum vöruflokkum sem hafa augljósa snertifleti við núverandi starfsemi Haga. Stórkaup er ætlað það hlutverk að þjóna stórnotendum um aðföng á breiðum grunni þar sem leiðarljósin verða hagkvæmni, nútímalegt þjónustustig og einfalt skipulag sölu og dreifingar.
Það er sérlega ánægjulegt að góður hópur starfsfólks sem starfað hefur fyrir Olís hefur fengið ný hlutverk hjá Stórkaup, en Árni Ingvarsson hefur verið ráðinn til að leiða félagið til framtíðar. Viðskiptavinir Stórkaups munu njóta þekkingar og reynslu þessa öflugu hóps í skemmtilegu uppbyggingarstarfi sem er framundan. “ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga hf.
„Á undanförnum misserum hefur Olís tekið mikilvæg skref sem miða að því að efla hagkvæmni í rekstri og skerpa á fókus starfseminnar. Endurskipulagning á vöruframboði og þjónustufyrirkomulagi á fyrirtækjasviði er mikilvægur liður í þessum aðgerðum. Þeir vöruflokkar sem koma til með að flytjast yfir til Stórkaup eru safn gæðavörumerkja sem viðskiptavinir okkar hafa verið mjög ánægðir með. Við höfum fulla trú á að þessir vöruflokkar komi til með að blómstra innan Stórkaups þar sem þeir munu verða í enn frekari fókus og unnt verður að bæta við nýjum og spennandi vöruflokkum innan þessarar nýju einingar með tíð og tíma. Á sama tíma gera þessar aðgerðir okkur hjá Olís kleift að sníða sölu- og dreifikerfi okkar betur að þeim vöruflokkum sem eftir standa og skerpa fókus enn frekar á okkar kjarnarekstur.“ segir Frosti Ólafsson framkvæmdastjóri Olís.