Í nýútgefinni skýrslu Haga um samfélagslega ábyrgð kemur fram að heildarmagn úrgangs frá rekstri Haga nam 5.077.119 kg fyrir árið 2021 sem jafngildir 10,8% lækkun frá 2020.
Hagar og dótturfélög félagsins hafa notað umhverfisstjórnunarkerfi Klappa frá árinu 2019 til mælingar á árangri félagsins í umhverfismálum. Klappir hafa í samvinnu við Haga tekið saman samfélagsuppgjör fyrir rekstrarárið 2021 og er niðurstöðum uppgjörsins skipt í umhverfis- og félagslega þætti og stjórnarhætti.
„Undanfarin ár höfum við lagt aukna áherslu á sjálfbærni í okkar rekstri og markað okkur skýra stefnu í þeim málum. Starfsemi Haga er viðamikil og ánægjulegt að sjá í uppgjörinu þann fjölbreytta árangur sem Hagar og dótturfélög hafa náð í sjálfbærni á liðnu rekstrarári. Til dæmis hefur heildar flokkunarhlutfall á sorpi frá fyrirtækjum Haga hækkaði um 2,3 % á sama tíma og heildarmagn úrgangs lækkaði um 10,8%. Víðtækar aðgerðir í flokkun og lágmörkun á sorpi hjá okkar fyrirtækjum eru að skila þessari jákvæðu þróun. Heildarlosun félagsins árið 2021 nam 4.150,2 tonnum koltvísýringsígilda sem er um 6,4% lækkun frá 2020. Hagar hafa kolefnisjafnað reksturinn að fullu með fjárfestingu í verkefnum á vegum Kolviðar og Landgræðslunnar.“ segir Finnur Oddsson forstjóri Haga
Finnur segir jafnframt að góður árangur hafi náðst í verkefnum er stuðla að minni matarsóun. Bónus hefur markvisst unnið að því síðustu ár að búa til verðmæti úr þeim matvörum sem ekki eru vænlegar til sölu vegna útlits eða eru að nálgast síðasta söludag. Á síðasta rekstrarári var 115 tonnum af ávöxtum og grænmeti bjargað frá sóun í rekstri Bónus.
Við vitum að það má alltaf gera betur þegar kemur að sjálfbærni og höfum því sett okkur metnaðarfull markmið fyrir komandi rekstrarár sem birt hafa verið í samfélagsskýrslum dótturfélaganna.