Þjóðin hefur lagst á eitt í söfnunarátaki Krabbameinsfélagsins í ár en á föstudaginn afhentu forsvarsmenn Hagkaups ávísun upp á þrjár milljónir króna sem söfnuðust í verslunum fyrirtækisins.
„Í byrjun október stóð Hagkaup fyrir söfnun þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja átakið með því að bæta 500 krónum við innkaup sín sem runnu til söfnunarinnar og Hagkaup lagði aðrar 500 krónur í mótframlag,“ segir Eva Laufey Kjaran, markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups, en ávísunin var afhent við hátíðlega athöfn í bleiku boði sem haldin var í Hagkaup í Kringlunni á föstudaginn.
„Söfnunin stóð yfir í viku og það stóð ekki á viðskiptavinum Hagkaups sem styrktu átakið um 1,5 milljón og lagði Hagkaup sömu upphæð á móti og söfnuðust alls þrjár milljónir. Þann 15. október héldum við bleikt boð þar sem boðið var upp á freyðandi óáfenga drykki, veitingar frá 17 sortum, Sigga Kling spáði fyrir gestum og gangandi og ávísunin var afhent,“ segir Eva Laufey.
Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, sagðist vera gríðarlega þakklátur viðskiptavinum Hagkaups sem styrktu átakið með þessu hætti sem ber merki um samstöðuna sem ríkir um Krabbameinsfélagið sem sinnir einstöku starfi.