Fara á efnissvæði

Á vegum Haga eru reknar átta sjálfstæðar rekstrareiningar með ólík rekstrarform og menningu. Allar einingar leggja áherslu á hagkvæman rekstur, góða þjónustu og hámörkun á virði fyrir eigendur félagsins. Rekstrareiningar Haga búa flestar yfir áralangri þekkingu á viðskiptum og smásölu og byggja á trausti viðskiptavina sem áunnist hefur um langt árabil.

HLUTVERK HAGA

Hlutverk Haga er að veita rekstrareiningum félagsins stuðning og aðhald í rekstri ásamt því að virkja rekstrar-, markaðs-, tækni- og viðskiptalega samlegð fyrirtækjanna til aukins hagræðis fyrir viðskiptavini og eigendur félagsins. Allar rekstrareiningar Haga leggja áherslu á hagkvæman rekstur, sjálfbærni og góða þjónustu. Lögð er áhersla á getu allra eininga til þess að hreyfa sig hratt og flækja ekki einfalda hluti.

GILDI HAGA

STERKARI SAMAN

Allar rekstrareiningar Haga eru reknar sem sjálfstæðar einingar en með áherslu á samvinnu, m.a. með því að byggja á sameiginlegum innviðum og deila þekkingu. Hjá félögum Haga starfa 2.700 starfsmenn í 1.500 stöðugildum sem á hverjum degi hafa áhrif á daglegt líf fólks í landinu með sínum störfum. Starfsfólk félagsins býr yfir áralangri þekkingu á verslun og hefur byggt upp viðskiptatengsl við birgja og framleiðendur um allan heim.

HÖFUM JÁKVÆÐ ÁHRIF

Hagar og dótturfélög leggja áherslu á sjálfbærni í allri sinni starfsemi og hafa lagt metnað sinn frá upphafi í að þjóna neytendum með ábyrgum hætti. Hagar taka virkan þátt í samfélagslegum verkefnum og starfsfólk og stjórnendur félagsins trúa því að það sé ekkert "plan B" og nálgast því öll verkefni með það fyrir augum að þau hafi jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag. 

  • Matvöruverslanir 40

  • Þjónustu- og bensínstöðvar 65

  • Vöruhús og sérvöruverslanir 5

  • Fjöldi starfsmanna 2.699

REKSTRAREININGAR HAGA

Innan þeirra átta rekstrareininga sem Hagar starfrækja í lok rekstrarárs eru 40 matvöruverslanir, ein netverslun með matarpakka, 22 Olís þjónustustöðvar og 43 ÓB-stöðvar um allt land. Einnig rekur félagið tvö vöruhús, eina framleiðslustöð, eina birgðaverslun og eina sérvöruverslun. Kjarnastarfsemi Haga er á sviði verslunar með dagvöru og eldsneyti og tengdrar starfsemi vöruhúsa. Hagar eru skráðir á aðallista NASDAQ OMX Iceland með auðkenninu HAGA. Höfuðstöðvar félagsins eru á Holtavegi 10 í Reykjavík.

Dótturfélög í samstæðu Haga, þar sem rekstrareiningar félagsins eru starfræktar, eru Hagar verslanir ehf., Olís ehf., Eldum rétt ehf., Bananar ehf., Stórkaup ehf. og Noron ehf. 

Undir hatti Haga verslana eru fyrirtækin Bónus, Hagkaup og Aðföng. Bónus og Hagkaup eru tvær af stærstu matvöruverslunarkeðjum landsins og sinnir vöruhúsið Aðföng innflutningi, innkaupum og dreifingu fyrir matvörukeðjurnar og Olís. Olís sérhæfir sig, auk annars, í sölu og þjónustu með eldsneyti. 

Eldum rétt er netverslun með matarpakka en félagið varð hluti af samstæðu Haga í nóvember 2022. Bananar er stærsti dreifingaraðili á fersku grænmeti og ávöxtum á Íslandi. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með rekstrarvörur, hreinlætisvörur og heilbrigðisvörur. Noron rekur tískuvöruverslunina Zara í Smáralind sem selur fatnað og fylgihluti fyrir alla aldurshópa.

Hlutdeildarfélög Haga eru Klasi ehf. og Djús ehf. Hagar eignuðust 1/3 hlut í Klasa í ágúst 2022 en Klasi er fasteignaþróunarfélag sem unnið hefur að fjölmörgum þróunarverkefnum í tæp 20 ár. Djús rekur veitingastaði undir merkjum Lemon en Hagar eiga 49% hlut í félaginu. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. og á auk þessi hluti í fleiri smærri félögum. 

Regluvörður Haga er Guðrún Eva Gunnarsdóttir. Staðgengill regluvarðar er Ólafur Arinbjörn Sigurðsson. Tölvupóstfang regluvarða er regluvordur@hagar.is.

Framkvæmdastjórn Haga
Framkvæmdastjórn móðurfélags Haga skipa (frá vinstri): Eiður Eiðsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni, Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Finnur Oddsson, forstjóri og Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar.

Um Haga Bónus

Bónus verslun að utan
Bónus baby
Bónus núðlur
Bónus starfsmaður
Bónus fjölskylda
  • Stofnað 1989

  • Verslanir 33

  • Starfsmenn 1.136

  • Vörusala 85 milljarðar

Um Bónus

Bónus var stofnað árið 1989 þegar fyrsta verslunin var opnuð við Skútuvog 13 í Reykjavík. Viðtökur landsmanna við hinni nýju verslun voru frábærar enda vöruverð mun lægra en þá þekktist. Verslunum hefur fjölgað jafnt og þétt í áranna rás og voru þær í árslok 2023/24 alls 33 talsins, 20 staðsettar á höfuðborgarsvæðinu og 13 á stórum þéttbýlisstöðum á landsbyggðinni.

Markmið Bónus sem lágvöruverðsverslun hefur alla tíð verið að tryggja neytendum um land allt lægsta mögulega vöruverð hverju sinni og bjóða sama verð um land allt. Lykillinn að því hefur verið lágur rekstrarkostnaður, íburður í lágmarki, takmarkað vöruúrval sem spannar þó allar þarfir heimilisins, stöðugt kostnaðaraðhald og mikill veltuhraði. Auk þess er opnunartími verslana Bónus skemmri en hjá samkeppnisaðilum. Leiðarljós fyrirtækisins hefur ávallt verið að láta viðskiptavini njóta ávinnings af hagstæðum innkaupum og hagkvæmum rekstri.

Sjálfbærni og stuðningur við samfélagið hefur verið lykilþáttur í rekstri Bónus allt frá stofnun. Allar verslanir Bónus hafa til að mynda flokkað plast, pappa og annan úrgang í fjölda ára. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Bónus má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2023

Hjá Bónus störfuðu í árslok 1.136 starfsmenn og var meðalfjöldi stöðugilda 483 á árinu.

Árið sem leið

Nýliðið rekstrarár var það stærsta í sögu Bónus en vörusala nam rúmum 85 ma. kr. Áhrif aukinnar verðbólgu voru þar töluverð en seldum stykkjum hefur fjölgað töluvert milli ára sem og fjölda viðskiptavina. Það er því ljóst að hagkvæmasta matvörukarfan vegur þungt í núverandi efnahagsástandi. Bónus leggur mikla áherslu á að standa við loforð um hagkvæmustu matvörukörfuna um land allt og hefur því til stuðnings verið oftast með lægsta verð samkvæmt verðlagskönnunum.

Bónus opnaði tvær nýjar verslanir á rekstrarárinu, við Norðlingabraut í Reykjavík og Miðhrauni í Garðabæ. Þá var versluninni í Holtagörðum lokað og ný og stærri verslun opnuð á betri stað í húsinu.

Ný sjálfsafgreiðslulausn „Gripið & Greitt“ var frumsýnd á árinu og hefur hún mælst mjög vel fyrir. Lausnin hefur verið innleidd í fimm verslunum og hafa yfir 20 þúsund viðskiptavinir sótt Bónus appið.

Þann 1. janúar 2024 lét Guðmundur Marteinsson af störfum sem framkvæmdastjóri Bónus eftir rúmlega 30 ára starf. Björgvin Víkingsson tók við keflinu en hann hafði starfað sem innkaupastjóri fyrirtækisins frá 1. maí 2023.

Framkvæmdastjórn Bónus
Framkvæmdastjórn Bónus skipa (frá vinstri): Otti Þór Kristmundsson, rekstrarstjóri, Björgvin Víkingsson, framkvæmdastjóri, Örvar Þór Kristjánsson, innkaupastjóri, Steinar J. Kristjánsson, upplýsingatæknistjóri og Erla Magnúsdóttir, fjármálastjóri. Á myndina vantar Baldur Ólafsson, markaðsstjóra.

Um Haga Hagkaup

Hagkaup Haggi
Salatbox
Systur
Ítalía
Veisluréttir
  • Stofnað 1959

  • Verslanir 7

  • Starfsmenn 673

  • Vörunúmer 60.000+

Um Hagkaup

Hagkaup var stofnað árið 1959 og á starfsemi fyrirtækisins djúpar rætur í samfélaginu enda verið órofinn hluti af verslunarsögu landsins í 65 ár. Í upphafi var Hagkaup rekið sem póstverslun sem sendi vörur beint frá birgðageymslu og upp að dyrum kaupandans. Fyrsta Hagkaupsverslunin var svo opnuð við Miklatorg árið 1967 og árið 1970 opnaði Hagkaup verslun sína í Skeifunni sem er eitt helsta flaggskip starfseminnar enn þann dag í dag.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því fyrsta verslunin leit dagsins ljós og hefur rekstur Hagkaups ávallt aðlagað sig að síbreytilegu neyslumynstri landsmanna. Í dag er megináhersla lögð á breitt úrval í matvöru, snyrtivöru og leikföngum, auk þess sem seldar eru heimilisvörur, tómstundavörur og fatnaður. Hagkaup kappkostar að bjóða upp á landsins fjölbreyttasta vöruúrval og gera verslunarferðina eins ánægjulega og mögulegt er, allt á einum stað.

Í árslok rak Hagkaup sjö verslanir, þar af sex á höfuðborgarsvæðinu og eina á Akureyri. Hagkaup leggur áherslu á þægindi og þjónustu og eru því tvær verslanir Hagkaups, í Skeifunni og Garðabæ, opnar allan sólarhringinn. Auk þess starfrækir Hagkaup öfluga netverslun með snyrtivörur, leikföng, veislurétti og aðra sérvöru og er boðið upp á sendingar hvert á land sem er, hratt og örugglega.

Hagkaup hefur unnið ötullega að sjálfbærnimálum á síðustu árum, meðal annars í aðgerðum til að minnka rýrnun og matarsóun en ekki síður með  áherslu á kolsýruvæðingu kæli- og frystikerfa. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Hagkaups má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2023.

Í árslok voru starfsmenn Hagkaups 673 talsins og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 321.

Árið sem leið

Rekstur Hagkaups á nýliðnu ári gekk vel en vörusala nam tæpum 25 ma. kr. Seldum stykkjum fækkaði lítillega á árinu en viðskiptavinir heimsóttu verslanir oftar sem er ánægjuleg þróun.

Á árinu var mikil áhersla lögð á hagræðingu, þó ekki síst með betri nýtingu á tækni og sjálfvirkni. Sjálfvirkar pantanir og rafrænir hillumiðar spiluðu þar stórt hlutverk. Einnig var lögð áhersla á framsækni í verslunum, t.d. með vöruúrvali, hilluröðun, uppsetningu verslana og margt fleira.

Í sumarbyrjun kynnti Hagkaup nýja veisluþjónustu á netinu en um er að ræða veislurétti þar sem boðið er uppá ljúffenga veislubakka af ýmsum stærðum og gerðum. Viðtökurnar hafa verið vonum framar en veisluréttir eru frábær viðbót við ört stækkandi úrval Hagkaups á netinu.

Hagkaup lauk kolsýruvæðingu kæli- og frystikerfa á rekstrarárinu og eru því allar verslanir Hagkaups keyrðar á umhverfisvænum kælimiðli. Hagkaup er fyrsta matvöruverslun á Íslandi til að ljúka slíkri innleiðingu.

Framkvæmdastjórn Hagkaup
Framkvæmdastjórn Hagkaups skipa (frá vinstri): Eva Laufey Hermannsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri, Svanberg Halldórsson, rekstrarstjóri verslana, Brynjar Helgi Ingólfsson, rekstrarstjóri innkaupa- og markaðssviðs, Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri, Ísak Pálmason, fjármálastjóri og Arndís Arnarsdóttir, starfsmannastjóri.

Um Haga Olís

Par í bíl
Stöð í myrkri
Útgerð
Olís par
Olísdeildin konur
  • Stofnað 1927

  • Þjónustu- og bensínstöðvar 65

  • Hraðhleðslustöðvar 15

  • Starfsmenn 438

Um Olís

Olís ehf. var stofnað árið 1927 og er því elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Olís sérhæfir sig í sölu og þjónustu með eldsneyti og aðrar olíuvörur, auk skyndibita, ýmissa nauðsynjavara fyrir bílaeigendur ásamt fjölþættri þjónustu við sjávarútvegs-, verktaka- og flutningafyrirtæki um land allt.

Grunnrekstur Olís hefur ávallt verið eldsneytissala, en með nýtingu á dreifineti fyrirtækisins og sérfræðiþekkingu hefur aukist sala á öðrum vörum, líkt og smurolíum, efnavörum, rekstrarvörum, gasi og nýlenduvörum. Olís á 40% hlut í Olíudreifingu ehf. en Olíudreifing sér m.a. um birgðahald og dreifingu á fljótandi eldsneyti fyrir Olís.

Hlutverk Olís er að vera verslunar- og þjónustufyrirtæki í fremstu röð á fyrirtækja- og einstaklingsmarkaði. Markmið fyrirtækisins er að bjóða viðskiptavinum góðar og samkeppnishæfar vörur á samkeppnishæfu verði, ásamt sveigjanlegu sölu- og þjónustukerfi um land allt. Þá leggur Olís áherslu á umhverfisvernd og mannúðarmál.

Í árslok rak Olís 22 þjónustustöðvar vítt og breitt um landið undir vörumerki Olís, þar af 8 á höfuðborgarsvæðinu. Markmið þjónustustöðva Olís er að vera „vinir við veginn“ og vera áfangastaður viðskiptavina á ferðinni um landið. Á stærstu þjónustustöðvum sínum rekur Olís skyndibitamerkin Grill 66 og Lemon mini.

Á 15 þjónustustöðvum Olís, vítt og breitt um landið, eru reknar hraðhleðslustöðvar fyrir rafmagnsbifreiðar. Hraðhleðslustöðvarnar eru reknar í samstarfi við Ísorku en áætlað er að slíkum stöðvum fjölgi enn frekar á næstu misserum.

Fyrsta ÓB-sjálfsafgreiðslustöðin var opnuð árið 1996 í Hafnarfirði en þær eru nú orðnar 43 talsins um land allt, þar af níu á höfuðborgarsvæðinu og 34 á landsbyggðinni.

Olís hefur í gegnum tíðina hugað vel að umhverfismálum og átt í gjöfulu samstarfi við Landgræðsluna, allt frá árinu 1992. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Olís má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2023

Í árslok störfuðu 438 starfsmenn hjá Olís og meðalfjöldi stöðugilda ársins var 317.

Árið sem leið

Árið sem nú er liðið var sterkt hjá Olís, ekki síst í sögulegu samhengi. Velta dróst saman en seldir eldsneytislítrar stóðu nánast í stað milli ára. Áhrif heimsmarkaðsverðs olíu hafði mikil áhrif á veltu í krónum talið en einnig á framlegð fyrirtækisins. Er það bæði að þakka hagfelldri birgðastýringu og ávinningi af gengisvörnum.

Tveimur ÓB stöðvum var lokað á árinu, annars vegar á Litlu kaffistofunni og hins vegar stöðinni á Egilsgötu sem lokaði í árslok 2023, í samræmi við samkomulag við Reykjavíkurborg um fækkun eldsneytisstöðva. Ný og glæsileg þjónustustöð var opnuð að Fitjum í Reykjanesbæ í byrjun sumars en á sama tíma var þjónustustöðinni á Básnum lokað. Á árinu hélt svo áfram innleiðing á hraðhleðslustöðvum í samstarfi við Ísorku en átta nýjar stöðvar litu dagsins ljós á árinu.

Þann 1. janúar 2024 lét Frosti Ólafsson af störfum sem framkvæmdastjóri Olís en Ingunn Svala Leifsdóttir tók við starfinu á sama tíma.

Framkvæmdastjórn Olís
Framkvæmdastjórn Olís skipa (frá vinstri): Thelma Björk Wilson, sviðsstjóri smásölusviðs, Stefán Karl Segatta, sviðsstjóri fyrirtækjasviðs, Ingunn Svala Leifsdóttir, framkvæmdastjóri, Ragnheiður Björk Guðmundsdóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs og Þrúður Maren Einarsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs.

Um Haga Eldum rétt

Sendill
Skurður
Loka kassa einstakir réttir
Sleeve
Einstakir réttir
  • Stofnað 2013

  • Starfsmenn 69

  • Úrval rétta 466

  • Nýir viðskiptavinir 5.300+

Um Eldum rétt

Eldum rétt er netverslun sem stofnuð var árið 2013. Eldum rétt býður viðskiptavinum sínum matarpakka með uppskriftum og hráefni í réttu magni til að elda hollar og bragðgóðar máltíðir, með sem minnstri fyrirhöfn. Markmið Eldum rétt er að gera eldamennskuna skemmtilegri og samverustundir fjölskyldunnar fleiri og betri.

Í hverri viku geta viðskiptavinir raða saman réttum vikunnar í sinn matarpakka. Valið stendur á milli 22 rétta sem breytast í hverri viku og gerist fjölbreytnin því ekki mikið meiri. Með því að afhenda viðskiptavinum 2-5 rétti á sama tíma sparast bæði tími og orka. Öllum hráefnum er handpakkað svo hægt sé að tryggja hámarks ferskleika og gæði hverju sinni. Eldum rétt er leiðandi á þessum markaði og býður upp á ferska og holla lausn fyrir fjölskyldur og einstaklinga.

Pöntunarfrestur spilar lykilhlutverk í rekstri og þjónustu Eldum rétt. Viðskiptavinir panta með minnst fimm daga fyrirvara en með því fá þeir ferskari hráefni, meiri fjölbreytni, minni matarsóun og skilja eftir sig minna kolefnisfótspor. Í framleiðsluferlinu er tryggð lágmarks matarsóun þar sem pantað er nákvæmt magn hráefna frá birgjum og því er pakkað í rétta skammta til viðskiptavina.

Eldum rétt hefur gjörbylt neyslumynstri viðskiptavina sinna og eru nú mörg þúsund landsmanna sem borða Eldum rétt í hverri viku.

Í árslok störfuðu 69 starfsmenn hjá Eldum rétt og var meðalfjöldi stöðugilda á árinu 46.

Árið sem leið

Rekstrarárið sem nú var að líða var fyrsta heila ár Eldum rétt í samstæðu Haga. Árið var það stærsta hingað til og afkoma langt umfram áætlanir. Viðskiptavinum hefur fjölgað jafnt og þétt og telst Eldum rétt til stærstu netverslana á Íslandi með matvöru en þar nýtur félagið góðs af sterkum tæknilegum grunni og gæðum fjölbreyttra matarpakka sem viðskiptavinir hafa tekið opnun örmum frá stofnun félagsins.

Á árinu var framleiðslurými fyrirtækisins stækkað og betrumbætt til að auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri. Stækkunin var auk þess mikilvæg til að auka afkastagetu vegna aukinnar eftirspurnar og mikillar magnaukningar.

Í byrjun árs var lagt af stað með þróun og sölu á „Einstökum réttum“ í samstarfi við Hagkaup. „Einstakir réttir“ gera viðskiptavinum kleift að koma við í næstu Hagkaupsverslun og grípa með sér stakan rétt að eigin vali en úrvalið spannar að jafnaði 9 mismunandi rétti.

Framkvæmdastjórn Eldum rétt
Framkvæmdastjórn Eldum rétt skipa (frá vinstri): Oddur Örnólfsson, innkaupa- og framleiðslustjóri, Róbert K. Lárusson, tæknistjóri, Hrafnhildur Hermannsdóttir, markaðsstjóri, Hanný Inga Birschbach, þjónustustjóri, Valur Hermannsson, framkvæmdastjóri og Snorri Guðmundsson, þróunarstjóri.

Um Haga Aðföng

Starfsmaður Aðföng kvk
Ferskar
Aðföng starfsmaður KK
Vöruhús Bónuskassar
Aðföng starfsmaður á lyftara
  • Stofnað 1993

  • Starfsmenn 177

  • Þjónusta alla daga vikunnar

  • Viðskiptalönd 29

Um Aðföng

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði en starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups og Olís auk heildverslunar Stórkaups. Sögu Aðfanga má rekja aftur til ársins 1993 þegar Bónus og Hagkaup stofnuðu sameiginlegt innkaupafyrirtæki undir nafninu Baugur ehf. Fyrirtækið hóf starfsemi í Suðurhrauni í Garðabæ og fékk nafnið Aðföng fimm árum síðar en þá um haustið, árið 1998, flutti fyrirtækið í Skútuvog 7. Alla tíð síðan hefur Aðföng þróað þar starfsemi sína fyrir þurrvörulager. Auk þurrvörulagers í Skútuvogi rekur Aðföng kæli- og frystivörugeymslu í Korngörðum 1 og starfsemi Ferskra kjötvara í Síðumúla 34. Ferskar kjötvörur eru einn af stærstu kjötverkendum landsins og býður neytendum upp á það besta í nauti og lambi frá íslenskum bændum. Ferskar kjötvörur leggja mikla áherslu á ferskleika, gæði og rekjanleika vara og sjá öllum matvöruverslunum Bónus og Hagkaups fyrir kjöti, auk þess að þjónusta veitingahús og fleiri aðila.

Innkaup Aðfanga felast annars vegar í viðskiptum við innlenda birgja og hins vegar innflutningi, þar á meðal eigin vörumerkja. Aðföng vinnur að vöruþróun eigin merkja í samstarfi við matvörukeðjurnar en þar ber hæst vörumerkin Himneskt og Heima. Aðföng flytur einnig inn áfengi sem selt er í vínbúðum ÁTVR og er verkefninu stýrt í gegnum Vínföng.

Stærðarhagkvæmni er lykilstef í allri starfsemi Aðfanga og er nýjasta tækni nýtt við rekstur fyrirtækisins hvar sem því verður við komið. Til þess að Aðföng geti sinnt kjarnahlutverki sínu, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli.

Aðföng leggja áherslu á að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar en með hagkvæmum og umhverfisvænum lausnum geta Aðföng stuðlað að öflun hráefna í fremstu röð. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Aðfanga má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2023.

Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 177 starfsmenn í 149 stöðugildum.

Árið sem leið

Rekstur vöruhúsa hefur verið krefjandi undanfarin ár og var nýliðið ár engin undantekning í umhverfi mikillar verðbólgu, hárra vaxta og tíðra uppskerubresta. Þrátt fyrir það gekk rekstur Aðfanga vel enda er skilvirk starfsemi Aðfanga til þess fallin að styðja við aukin umsvif og aukið selt magn í verslunum Haga.

Á árinu var sem fyrr mikil áhersla lögð á að sporna við verðhækkunum á aðföngum til verslana. Skýr afstaða var tekin gagnvart óeðlilegum verðhækkunum frá birgjum og var þannig stutt við forsendur kjarasamninga.

Á árinu var unnið að stækkun vöruhúss Aðfanga í Skútuvogi og lauk þeim framkvæmdum að mestu á árinu. Stækkunin er mikilvæg fyrir Aðföng til að sinna áfram á skilvirkan hátt aðfanga- og dreifineti innan Haga, sem hagkvæmur rekstur verslana félagsins byggir á.

Framkvæmdastjórn Aðfanga
Framkvæmdastjórn Aðfanga skipa (frá vinstri): Lárus Óskarsson, framkvæmdastjóri, Einar Þórisson, innkaupastjóri og Hafdís Rósa Sæmundsdóttir, fjármálastjóri.

Um Haga Bananar

Starfsfólk
Tómatar
Starfsmaður
Paprika
Banana logo
  • Stofnað 1955

  • Starfsmenn 105

  • Viðskiptavinir 900+

  • Daglegar pantanir 430

Um Banana

Bananar ehf. var stofnað árið 1955 og er næst elsta fyrirtækið í samstæðu Haga. Bananar er stærsti innflutnings- og dreifingaraðili á fersku grænmeti, ávöxtum og berjum á Íslandi og jafnframt eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins. Einnig eru Bananar stærsti kaupandi og dreifingaraðili á innlendri grænmetis- og berjaræktun.

Eins og nafn fyrirtækisins gefur til kynna voru fyrstu starfsár þess helguð innflutningi og þroskun banana. Síðan þá hafa áherslur breyst og í dag býður fyrirtækið upp á mikið og gott úrval af bæði íslensku og erlendu grænmeti og ávöxtum allan ársins hring. Vörum er dreift til viðskiptavina sex daga vikunnar, þar af til verslana Bónus og Hagkaups.

Viðskiptavinir Banana eru um 900 talsins og samanstanda af verslunum, veitingahúsum, heilbrigðisstofnunum, skólum, leikskólum, mötuneytum o.fl. 

Til þess að Bananar geti sinnt sínu kjarnahlutverki, að tryggja íslenskum neytendum hágæða mat- og dagvöru, skiptir skilvirkur flutningur, gagnsæi í uppruna vöru og gæði öllu máli. Til þess að sinna þessum þörfum hafa Bananar bein viðskiptasambönd út um allan heim og beina því viðskiptum sínum beint til þeirra landa þar sem gæði ávaxta og grænmetis er best hverju sinni. Vörur berast vikulega með skipi og daglega með flugi en auk þess berst daglega grænmeti frá íslenskum grænmetisbændum.

Starfsfólk Banana hefur um langt skeið haft sjálfbærni að leiðarljósi í sínu starfi og er fyrirtækið í raun þjóðhagslega mikilvægt þegar kemur að því að sjá landsmönnum daglega fyrir hollum og góðum vörum. Nánari upplýsingar um sjálfbærnimál Banana má finna í sjálfbærniskýrslu ársins 2023.

Starfsmenn fyrirtækisins voru í árslok 105 talsins í 103 stöðugildum.

Árið sem leið

Að baki er gott ár í rekstri Banana. Enn eru miklar áskoranir í ytra umhverfi fyrirtækisins en stefnumótun, sterkari innviðir, betri gæðaferlar, vöruþróun og stækkun vöruhúss hefur skilað góðum árangri.

Uppskerubrestir voru tíðir á árinu en áhrif loftslagsbreytinga í heiminum, s.s. óveður, þurrkar og flóð, hafa gert það að verkum að finna þarf nýjar leiðir til að útvega ávexti og grænmeti frá öllum heimshornum. Áskoranir í rekstri eru því af ýmsum toga.

Í framhaldi af mikilli stefnumótunarvinnu í fyrra hefur orðið breyting á grunnrekstri Banana, sem hefur hingað til snúist um kaup og sölu á ávöxtum og grænmeti. Settar hafa verið á laggirnar nýjungar sem fela í sér framleiðslu á vörum úr eigin hráefnum og hefur þannig verið aukið verulega við vöruúrval á tilbúnum vörum.

Framkvæmdastjórn Banana
Framkvæmdastjórn Banana skipa (frá vinstri): Sigurður Helgason, innkaupastjóri, Jóhanna Þ. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, Kristján Jón Jónatansson, fjármálastjóri, Pétur Smári Sigurgeirsson, sölustjóri veitingamarkaðar, Embla Grétarsdóttir, mannauðsstjóri og Örvar Karlsson, sölu- og markaðsstjóri.

Um Haga Stórkaup

Starfsmaður kvk
Starfsmaður kk á ryksugu
Bílar
Vín
Logo
  • Stofnað 2022

  • Starfsmenn 21

  • Viðskiptavinir 4.000+

  • Vörunúmer 3.000+

Um Stórkaup

Stórkaup var stofnað árið 2022 og hóf rekstur sinn í maí sama ár en stofnun fyrirtækisins byggir á grunni valinna vöruflokka fyrirtækjasviðs Olís. Stórkaup er heildverslun sem þjónar stórnotendum með aðföng á breiðum grunni þar sem leiðarljósin í rekstri eru hagkvæmni, nútímalegt þjónustustig og einfalt skipulag sölu og dreifingar.

Helstu vöruflokkar fyrirtækisins eru ýmsar rekstrar-, hreinlætis- og heilbrigðisrekstrarvörur auk helstu flokka matvöru og áfengis. Viðskiptavinir Stórkaups eru m.a. framleiðendur, sjávarútvegur, rekstraraðilar, veitingageirinn, hótel og heilbrigðisstofnanir.

Markmið Stórkaups er að bjóða gæða vörur á samkeppnishæfu verði, veita góða þjónustu og áreiðanleika í vöruframboði og afhendingum. Hjá Stórkaup starfar samhentur hópur með mikla reynslu og sérfræðiþekkingu á sínu sviði.

Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 21 starfsmaður í 20 stöðugildum.

Árið sem leið

Nýliðið rekstrarár var fyrsta heila ár í rekstri Stórkaups. Árið einkenndist af stækkun og útvíkkun vöruflokka auk þess sem unnið hefur verið að umbótum á netverslun félagsins. Notkun netverslunarinnar hefur aukist jafnt og þétt og hlutfall sölu í gegnum netverslunina sömuleiðis.

Framkvæmdastjórn Stórkaups
Framkvæmdastjórn Stórkaups skipa (frá vinstri): Bjartur Logi Finnsson, sölustjóri matvöru, Ólöf Helgadóttir, þjónustustjóri, Jón Berg Torfason, sölustjóri rekstrarvöru, Guðmundur Elías Sæmundsson, sölustjóri heilbrigðisvöru, Þórey Anna Grétarsdóttir, verkefnastjóri og Árni Ingvarsson, rekstrarstjóri.

Um Haga Zara

Starfsmaður kk
Starfsmaður afgreiðsla
Starfsmaður og gína
lógó
Starfsmaður KVK
  • Stofnað 2001

  • Starfsmenn 50

  • Heimsóknir viðskiptavina 235.000+

  • Fjöldi fermetra 2.800

Um Zara

Noron ehf. rekur verslun á Íslandi undir vörumerki Zara. Zara er ein stærsta tískuverslunarkeðja í heimi og selur fatnað og fylgihluti fyrir alla aldurshópa á góðu verði.

Grunnurinn að velgengni vörumerkisins Zara á heimsvísu felst einna helst í því að greina óskir viðskiptavina og bregðast hratt við þeim. Varan er hönnuð í takt við stefnur og strauma í tískuheiminum hverju sinni og ráða viðtökur og óskir viðskiptavina frekari framleiðslu og vöruþróun.

Mikil áhersla er lögð á sanngjarnt verð og hraða vöruveltu en áhersla er lögð á að nýjar vörur séu á boðstólnum að lágmarki tvisvar í viku. Einnig hefur verslunarkeðjan unnið ötullega í sjálfbærni, meðal annars með því að endurvinna notaðan fatnað. Ný efni eru þá ofin úr notuðum þráðum og þau hönnuð og framleidd undir vörulínunni JOIN LIFE. Vörulínan er fáanleg í öllum deildum, dömu, herra og barna. Mikill metnaður er lagður í að allt efni sem notað er við framleiðslu á fatnaði sé umhverfisvænt.

Í daglegum rekstri verslunarinnar er allt sorp flokkað og endurunnið að því marki sem endurvinnsla er möguleg. Sömuleiðis er unnið að virku hringrásarhagkerfi með endursendingum til vöruhúsa á öllu endurnýtanlegu hráefni.

Fyrsta verslun Zara opnaði á Íslandi árið 2001 og í dag starfrækja Hagar eina verslun og vefverslun undir merki Zara með sérleyfissamningi frá Inditex á Spáni. Verslunin er staðsett í Smáralind.

Hjá fyrirtækinu störfuðu í árslok 50 starfsmenn í 33 stöðugildum.

Árið sem leið

Rekstur Zara á árinu gekk vel þar sem velta jókst frá fyrra ári. Seldum stykkjum fjölgaði nokkuð og viðskiptavinir heimsóttu verslunina heldur oftar en á fyrra ári. Hlutfall netverslunar af heildarsölu fór stækkandi undanfarið ár og jókst um 3,0%-stig milli ára.

Rekstrarstjóri Zara
Frá vinstri: Ingibjörg Sverrisdóttir, rekstrarstjóri og Guðrún Sólborg Tómasdóttir, verslunarstjóri.