Frétt
11.06.2010
Athugasemd:
Morgunblaðið hefur undanfarna mánuði ítrekað birt ósannindi um rekstur Haga. Í upphafi vikunnar kom fram í leiðara blaðsins að Hagar hafi „verið settir á hausinn“ og í leiðara blaðsins í dag kemur tvívegis fram að félagið hafi verið „sett á höfuðið“. Þetta er rangt. Hagar hafa aldrei „farið á höfuðið“. Rekstur Haga hefur gengið vel. Hagnaður var af rekstri félagsins á síðasta rekstrarári og eiginfjárstaða félagsins er góð.
Ítrekað hefur komið fram að Hagar hafa staðið við allar sínar skuldbindingar og er eitt af fáum félögum sem hefur greitt upp skuldabréfaflokk að fullu, sem skráður var í Kauphöll Íslands. Hagar hafa ekki fengið neina eftirgjöf eða niðurfellingu skulda og slíkt stendur ekki til, enda félagið í góðum rekstri.
Margítrekuð ósannindi Morgunblaðsins um rekstur Haga, eru alvarlegt mál fyrir rekstur félagsins. Ekki síst þar sem markvisst er grafið undan orðspori félags, sem á í samskiptum við fjölmarga aðila, innanlands sem utan. Það er alvarlegt að Morgunblaðið fari vísvitandi með rangt mál. Slíkt er nauðsynlegt að leiðrétta, enda um óþolandi atvinnuróg að ræða.
Með kveðju,
Finnur Árnason
Forstjóri / CEO
Hagar hf.
Til baka