Frétt
09.12.2009
Hagkaup aðstoðar Fjölskylduhjálp Íslands
Fjölskylduhjálp Íslands tekur á móti framlagi frá Hagkaupi. Hagkaup styrkir Fjölskylduhjálpina með 200 innkaupapokum með meðlæti til jólanna að andvirði um 600 þúsund krónur. Meðfylgjandi mynd sýnir Ásgerði Jónu Flosadóttur veita styrknum móttöku frá Gunnari Inga Sigurðssyni framkvæmdastjóra Hagkaups.
Til gamans má greina frá því að það hús sem hýsir Fjölskylduhjálp Íslands hýsti fyrstu verslun Hagkaups í kringum 1960.
Til baka