Frétt

25.05.2009

Íslensk framleiðsla aukin hagsæld

Í tilefni af 20 ára afmæli Bónus hefur fyrirtækið ákveðið að setja 20 milljónir króna í sérstakan vöruþróunarsjóð þar sem unnið verður með fyrirtækjum og einstaklingum að þróun á nýjum neytendavörum sem framleiddar eru með íslensku hráefni og/eða á Íslandi.
 Markmið þessa framtaks er að efla íslenska framleiðslu og auka hlutdeild íslenskra vara í vöruúrvali Bónus.  Það er von okkar að væntanlegar nýjungar geti komið í stað innflutnings, spari þannig gjaldeyri og auki framleiðslu hér á landi sem er forsenda aukinnar hagsældar.
Hvað er í boði?
Bónus mun bjóða upp á
1.        Faglega aðstoð við markaðssetningu vara í verslunum sínum.
2.        Aðgengi að matvælafræðingi með mikla reynslu og þekkingu á sviði vöruþróunar og gæðamála.
3.        Fjárstuðning að hámarki 1.000.000 kr. gegn jafnháu mótframlagi umsækjenda.  Fénu skal varið í vöruþróun og er ætlað að hjálpa umsækjendum að  koma vörum sínum yfir síðasta hjallinn, jafnframt sá erfiðasta áður en þær fara í sölu.
4.        Styrk til tækjakaupa að hámarki 750.000 kr. gegn jafnháu mótframlagi umsækjenda, ef um nýja framleiðslutækni er að ræða eða búnaðar sem eykur hagkvæmni í rekstri.

Hvernig verkefni eru styrkt?
Almennt er hægt að skipta vöruþróunarverkefnum í
1.        Nýsköpun – nýjar vörur inn á nýjan markað
2.        Nýjar vörulínur í Bónus
3.        Nýjungar innan núverandi vörulína
4.        Staðsetja núverandi vörur innan nýrra vöruflokka (repositioning)
5.        Betrumbæta núverandi vörur
Vöruþróunarsjóður Bónus mun leggja áherslu á þróun á nýjum vörum inn á nýjan markað og nýjar vörulínur inn í Bónus.

Hvar í vöruþróunarferlinu kemur Bónus inn?
Hægt er að skilgreina vöruþróunarferli líkt og gert er hér fyrir neðan, en kostnaður við þróun nýrra vara eykst með hverju skrefi!
1. skref Stefnumörkun, hugmyndaleit og val hugmynda (SWOT, Brainstorm, markaðsupplýsingar, ný viðskiptatækifæri, PEST)
2. skref Könnun á tæknilegri hagkvæmni og markaðshorfum. Prófanir og hönnun frumgerðar.
3. skref  Mikilvægasta skrefið. Er verkefnið tæknilega, markaðslega og viðskiptalega hagkvæmt? Skilgreina vöru/verkefni og hanna verkáætlun.
4. skref  Vöruþróun, frá frumgerð til fullnaðarþróunar.  Markaðs- og framleiðsluáætlanir skilgreindar.
5. skref  Tilraunamarkaðssetning, síðustu forvöð að gera breytingar á vöru, útliti, markaðsplani, verkferlum o.s.frv.
6. skref  Vara fer á markað.
           
Vöruþróunarsjóður Bónus mun koma inn í verkefni eftir að væntanlegar nýjungar eru komnar af hugmyndastigi og frumgerð tilbúin (skref 3).  Nýjungarnar þurfa að vera samkeppnishæfar á smásölumarkaði, framleiddar úr íslensku hráefni og/eða hér á Íslandi, auk þess sem drög að kostnaðaráætlun þarf að liggja fyrir. 

Hvernig er sótt um?
Tekið er á móti umsóknum fram til 1. október 2009 á skrifstofu Bónus, Skútuvogi 13, en verkefni eru metin af stjórn sjóðsins jafnóðum og þær berast.  Með hverri umsókn skal senda sýnishorn af væntanlegri vöru, auk greinagóðrar útlistunar á fyrirtæki umsækjenda, eiginleikum vöru/vörulínu og drög að markaðsáætlun.

Það er von Bónus að þetta framtak mælist vel fyrir og verði tenging milli þeirrar miklu grósku sem á sér stað í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum landsins og neytenda.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar hjá Önnu Margréti Jónsdóttur, verkefnastjóra í síma 588-8033 eða í netfanginu amj@bonus.is


 


Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi