Frétt

05.12.2008

Hagkaup styrkir Mæðrastyrksnefnd

Föstudaginn 28. nóvember styrkti Hagkaup Mæðrastyrksnefnd með tveggja milljóna króna framlagi til leikfangakaupa fyrir yngstu kynslóðina. Hagkaup hefur insett sér að styðja veglega við nokkur málefni árlega og er þessi stuðningur við gott og þarft starf Mæðrastyrksnefndar liður í því. 

"Við skoðuðum málið og töldum að í því erfiða árferði sem við nú erum að upplifa geti börnin orðið útundan," segir Gunnar Ingi Sigurðsson. "Því ákváðum við að leggja til þetta framlag. Það er nauðsynlegt að börn fái að upplifa þá gleði sem fylgir því að njóta gleðilegra jóla."

Á meðfylgjandi mynd sjást Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri, og Arndís Arnarsdóttir, starfsmannafulltrúi, fyrir hönd Hagkaups og Ragnhildur Guðmundsdóttir og Margrét K. Sigurðardóttir fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar.

Hagkaup er leiðandi á íslenskum smásölumarkaði og býður mesta úrval hérlendis í sérvöru og matvöru. Hjá fyrirtækinu starfa 850 manns í tíu verslunum um land allt sem dag hvern leggja sig alla fram um að uppfylla væntingar viðskiptavina um eina ferð, betra verð.



Til baka



Aukaval


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi