Frétt
06.03.2008
Útilíf í Holtagarða
Útilíf hefur opnað nýja stórglæsilega verslun í Holtagörðum. Verslunin er á annarri hæð Holtagarða og er um 1200fm að grunnfleti. Í versluninni er lögð mikil áhersla á skó og sportvöru, þar er einnig stór og myndarleg deild fyrir árstíðabundna vöru svo sem hjól, hlaupafatnað og hlaupaskó. Þar má finna stóra sérdeild fyrir útivistarvörur sem við erum stolt af þar má nefna The North Face og Cintamani útivistarfatnað. Við leggjum mikla áherslu á að allar deildir og vörur séu aðgengilegar og ekki skemmir fyrir að búðin er einstaklega björt og þægileg. Í Holtagörðum eru næg bílastæði og aðgengi að versluninni mjög gott.
Til baka