Frétt
27.11.2007
Hagkaup árgerð 2008
Miðvikudaginn 28. nóvember munu Hagkaup opna glæsilega stórverslun í Holtagörðum við Holtaveg. Með opnun verslunarinnar treysta Hagkaup sig enn frekar í sessi sem leiðandi aðili á smásölumarkaði.
Hagkaup Holtagörðum er 8 þúsund fermetra verslun sem mun skarta því besta sem Hagkaup hafa upp á að bjóða í matvöru og sérvöru. Verslunin mun bjóða 40-50 þúsund vörunúmer, en Hagkaup bjóða á ári hverju yfir 60 þúsund vörunúmer sem er mesta úrval sem ein verslun býður hérlendis og þótt víðar væri leitað.
NÝJAR ÁHERSLUR
Þegar hafist var handa við að ákvarða grunnskipulag verslunarinnar var miðað við að gera aðgengi viðskiptavina sem best. Verslunin er því hönnuð til að þjóna viðskiptavinum þannig að þeir geti gengið erinda sinna með eins þægilegum hætti og kostur er. Henni er skipt upp í nokkrar deildir sem tengjast saman á sameiginlegum svæðum. Þannig er dömudeild tengd snyrtivöru-, undirfata- og skódeildum. Herradeild tengist skódeild ásamt raftækja- og skemmtideild. Barnadeild tengist skódeild og að sjálfsögðu leikfangadeild.
Matgæðingar frá að njóta sín í matvörudeildum með vöruvali sem er án hliðstæðu hérlendis. Athafnarými matvörudeildar er hannað til að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu og til að þeir geti auðveldlega nálgast þá vöruflokka sem þeir sækjast eftir. Þannig er Lífsins lind deild sem býður landsins mesta úrval í lífrænum heilsu- og fæðubótarefnum tengd ávaxta- og grænmetisdeild. Ferskvörudeildum er stillt upp saman til hagræðis fyrir viðskiptavini og er óhætt að fullyrða að ferskvörusvæði Hagkaupa Holtagörðum sé eitt það lengsta á Íslandi. Þá eru ríflega 7 þúsund vöruliðir í boði í þurrvörudeild.
Verslunin mun kynna nýja tegund innkaupavagna sem veita enn meira öryggi fyrir viðskiptavini og eru vottaðir af forvarnarhúsi Sjóvá-Almennra.
MATVARA
Í matvörudeildum er bryddað upp á fjölmörgum nýjungum. Nýstárlegar innréttingar, litaval og nýbreytni í framstillingum eiga eftir að koma viðskiptavinum þægilega á óvart. Allt yfirbragð verður í öðrum takti en Íslendingar hafa vanist hingað til.
Lífsins lind er deild með lífrænum heilsu- og fæðubótarvörum, en ásókn í þessar vörur hefur aukist mikið á undanförnum árum. Þar eru í boði fjölbreytt úrval allra þeirra vara sem tilheyra þessum vöruflokkum til hagræðis fyrir viðskiptavini.
Grænmetis- og ávaxtadeild Hagkaupa Holtagörðum gengur enn lengra en fólk hefur þegar vanist, en Hagkaup hafa verið rómuð fyrir ótrúlegt úrval og ferskleika í grænmetis- og ávaxtatorgum. Vöruvalið er meira en nokkru sinni og mikið verður um nýjungar.
Ferskt og fljótlegt er ný deild sem mun sinna vaxandi eftirspurn eftir tilbúnum mat. Þar verður skemmtilegt úrval sem spannar allt frá samlokum til nýrra sælkerarétta, en Hagkaup Holtagörðum munu bjóða upp á tugi kaldra rétta ásamt meðlæti sem viðskiptavinir geta valið til að taka með heim.
Hagkaup Holtagörðum munu státa af stærsta salatbar sem komið hefur til landsins og mun úrvalið verða enn meira en áður hefur þekkst.
Það er því óhætt að segja að sú umgjörð sem sköpuð er fyrir matvöru í nýrri verslun Hagkaupa í Holtagörðum muni veita viðskiptavinum nýja upplifun þegar þeir versla í hversdags- eða veislumatinn.
SÉRVARA
Ný snyrtivörudeild í Hagkaupum Holtagörðum verður stærsta snyrtivörudeild landsins með öll þau merki sem konur og menn leita eftir og meira til. Rekin verður sérdeild með snyrtivörum frá Bobbi Brown, en það vörumerki þykir eitt það heitasta í heiminum í dag.
Fatadeildir eru allar hannaðar með þarfir viðskiptavinarins í huga. Þannig er barnafatnaði raðað eftir flokkum; fyrir stelpur, stráka, yngri eða eldri - eins og Íslendingar eru vanir erlendis frá. Á sama hátt er herra- og dömudeildum skipt upp eftir flokkum svo viðskiptavinir séu fljótir að finna það sem þá vanhagar um. Allar innréttingar fatadeilda eru með nýju sniði og boða ferskan andblæ í fataverslun hérlendis.
Eins og alltaf verður leikfangadeildin skemmtilegasta deildin, en þar hefur verið settur upp Latabæjarheimur þar sem krakkar geta séð Latabæjarþætti og prófað Latabæjardót. Þá er boðið upp á vatnsorkudrykk í Latarbæjardeildinni. Á þessum árstíma er mikið um nýjungar og aldrei hefur verið meira úrval af vörum í vinsælustu leikfangamerkjunum eins og Hello Kitty, Transformers, Cars og Pets. Að sjálfsögðu verður opnun nýju verslunarinnar fagnað með fjölda spennandi tilboða.
Raftækja- og skemmtiefnadeild er í Hagkaupum Holtagörðum og er skemmtilegt að segja frá því að þar verður {sælureitur/athvarf/hvíldarreitur/} fyrir þreytta pabba eða bara hvern sem er. Hægt verður að setjast niður, glugga í blöðin, kíkja á boltann eða annað það sem er í sjónvarpi.
Í tengslum við opnun Hagkaupa í Holtagörðum mun að sjálfsögðu verða boðið upp á fjölda tilboða og verða mörg hver þannig að annað eins hefur ekki sést. Þá mun fjöldi stórstjarna mæta og taka lagið auk þess að uppákomur og skemmtanir munu verða á hverjum degi frá opnunardegi og fram á helgina. Verslunin mun iða af lífi, mikið verður um kynningar og því ættu allir, ungir sem aldnir, að hafa gaman af því að líta við í opnun á einni glæsilegustu verslun Evrópu þó víðar væri leitað.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Ingi Sigurðsson framkvæmdastjóri í síma 563-5000 eða í netfanginu gis@hagkaup.is
-----------------------
Hagkaup eru leiðandi á íslenskum smásölumarkaði og bjóða mesta úrval hérlendis í sérvöru og matvöru. Hjá fyrirtækinu starfa 950 manns í tíu verslunum um land allt. Kannanir sýna að Íslendingar telja að í Hagkaupum sé skemmtilegast að versla.
Til baka