Frétt
02.11.2007
Hagar óska eftir rannsókn.
Hagar hafa sent Samkeppniseftirlitinu bréf þar sem fyrirtækið óskar eftir því að stofnunin hefji nú þegar rannsókn á tilhæfulausum ásökunum á hendur fyrirtækjum Haga hf., þess efnis að fyrirtækin séu aðilar að ólögmætu samráði á matvörumarkaðnum hér á landi. Bréfið til Samkeppniseftirlitsins er hjálagt.
Í kjölfar hádegisfrétta RÚV í gær, sem byggðu á sögusögnum ónafngreindra fyrrverandi starfsmanna hefur farið fram óvægin umræða um matvörumarkaðinn. Sú umræða hefur farið fram í fjölmiðlum, á alþingi, í netmiðlum og víðar.
Þrátt fyrir að niðurstaða rannsóknarblaðamennsku fréttamanna RÚV hafi sýnt að engar verðbreytingar hafi átt sér stað í verslunum Bónus á meðan verðkönnun var framkvæmd, hefur allur fréttaflutningur og önnur umfjöllun sett Bónus undir sama hatt og verslun, sem breytti verðum á meðan á verðkönnun stóð. Rétt er að ítreka að RÚV húsmóðirin fékk sama verð og RÚV fréttakonan í Bónus.
Í umræðum á Alþingi Íslendinga í dag var m.a. vikið að því að „í sumum þessum verslunum hefur verðlagseftirliti ASÍ verið úthýst“. Hér er átt við verslanir Haga.
Hagar hafa í nokkurn tíma gagnrýnt ríkisstyrkt verðlagseftirlit ASÍ. Rétt er að eftirfarandi skýringar komi fram:
1. Opinber gagnrýni Haga á verðlagseftirlit ASÍ hefur beinst að ónákvæmni í vinnubrögðum. Mörg dæmi eru um mannleg mistök, sem valda því að niðurstöður verðkannana eru rangar. Hagar hafa í langan tíma og ítrekað með rökstuddum hætti sýnt fram á mistök við framkvæmd verðkannana ASÍ, án þess að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum. Til upprifjunar er rétt að benda á að eitt af þeim dæmum sem Hagar nefndu máli sínu til stuðnings í síðustu verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ var að ASÍ bar saman 1 ltr. af Berió ólífuolíu í einni verslun við 750 ml. í þeirri næstu.
2. Hagar hafa margítrekað bent ASÍ á skipulögð viðbrögð og blekkingar aðila á matvörumarkaði við heimsóknum verðlagseftirlits ASÍ og brot á þeim hluta samkomulags um verklagsreglur, sem gerðar voru á milli ASÍ og SVÞ, sem snýr að því að engar verðbreytingar eigi sér stað í verslunum á meðan verðlagseftirlit ASÍ framkvæmdir verðkannanir. Athugasemdir Haga hafa verið vel rökstuddar. ASÍ hefur á engan hátt brugðist við þessum athugasemdum. Þessi þáttur hefur vegið þungt í ákvörðun Haga að taka ekki þátt í verðlagseftirliti ASÍ.
3. ASÍ hefur sent frá sér fréttatilkynningar í kjölfar verðkannana. Hagar hafa talið ákveðnar fréttatilkynningar aðför að orðspori fyrirtækisins og m.a. farið fram á að dómkvaddir matsmenn fari yfir sannleiksgildi þeirra. Dómkvaddir matsmenn munu hafa fullan aðgang að öllum gögnum Haga til þess að sannreyna hvort fréttatilkynningar ASÍ eigi við rök að styðjast eða ekki.
4. Með framangreint í huga hljóta Hagar einnig að velta fyrir sér trúverðugleika verðlagseftirlits ASÍ, þegar framkvæmdastjóri ASÍ er fyrrum stjórnarformaður Kaupás og þar með eins af okkar samkeppnisaðilum, Krónunnar.
Bréf til Samkeppniseftirlitsins
Til baka