Frétt
25.10.2007
Ný Bónusverslun opnuð í Garðabæ
Ný Bónusverslun verður opnuð í Garðabæ nk. laugardag, 27. október kl. 10. Boðið verður upp á fjölda opnunartilboða. Verslanir Bónus eru nú 25 talsins eftir að tveimur litlum verslunum var lokað í sumar.
,,Þetta er verslun af því tagi sem okkur þykir henta okkur og viðskiptavinum Bónus best þessa dagana, um 1.200 fermetrar og með rúmgóðum göngukælum fyrir mjólk og kjöt annars vegar og grænmeti og ávexti hins vegar. Við höfum ekki áður verið með verslun í Garðabænum og því verður spennandi að sjá hvort þessi staðsetning muni ekki henta viðskiptavinum okkar vel,” segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. Verslunin er í sama húsi og Max, ská á móti IKEA.
Verslunin í Garðabænum verður með nokkuð hefðbundnu Bónussniði þar sem boðið verður upp á alla helstu vöruflokka í matvöru og sérvöru eftir því sem pláss leyfir. Guðmundur segir að í þessari verslun verði áfram þróað rafrænt verðmerkikerfi sem eigi að minnka hættuna á röngum verðmerkingum.
,,Við höfum verið að prófa þetta kerfi í rúmt ár og gengið mjög vel. Verðið skiptir okkur í Bónus öllu máli og því er mikilvægt að reyna að gera þetta eins sjálfvirkt og hægt er,” segir Guðmundur.
Í tilefni að opnun verslunarinnar í Garðabæ gefur Bónus íþróttafélaginu Stjörnunni eina milljón króna. Íþróttafélögin í landinu vinna geysilega mikilvægt uppeldis- og forvarnarstarf og það vill Bónus styðja.
Verslunarstjóri í nýju versluninni verður Bjarni Sæmundsson.
Til baka