Bónus
Fyrsta verslun Bónus var opnuð 8. apríl 1989 síðan þá hefur fyrirtækið lagt metnað sinn í að bjóða alltaf lægsta verðið hverju sinni. Starfsmenn fyrirtækisins fylgjast náið með þróun vöruverðs á markaðnum og á hverjum degi, allt gert til að standa undir því sem lofað hefur verið frá upphafi, að bjóða alltaf betur.
Uppbygging verslana Bónus miðar að því að lágmarka allan kostnað. Áhersla er lögð á mjög hraða vöruveltu, auk þess sem lagerhald er nánast ekkert umfram það sem er í hillum verslananna.
Kappkostað er að viðskiptavinirnir geti gengið að öllum helstu nauðsynjavörum í verslunum fyrirtækisins. Þannig sinna verslanirnar þörfum neytenda en halda um leið kostnaði við birgðahald í lámarki - sem aftur stuðlar að lægra vöruverði.
Á liðnum árum hefur aukin áhersla veri lögð á ferskvöru, sérstaklega í ávöxtum og grænmeti. Kælar hafa verið stækkaðir og sífellt meira pláss er lagt undir lífrænt ræktaðar vörur. Boðið er upp á ákveðna grunnvöru í sérvöru í verslunum fyrirtækisins, auk árstíðabundinnar vöru.
Bónus hefur notið mikilla vinsælda frá upphafi, til marks um það hafa neytendur valið fyrirtækið sem vinsaælasta fyrirtæki landsins í Frjálsri verslun alls 9 sinnum. Þá hefur Bónus fengið Neytendaverðlaun Neytendasamtakanna og Bylgjunnar í þau tvö skipti sem þau hafa verið veitt, árin 2006 og 2007. Alls eru verslanir Bónus orðnar 28 talsins, á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.
Nánari upplýsingar á vefsíðunni: http://www.bonus.is/
Bónus - Skútuvogi 13 - 104 Reykjavík - sími: 588-8699 - skrifstofa@bonus.is
Til baka